Svifvængjanámskeið
Námskeið í svifvængjaflugi eru haldin snemma sumars á hverju ári.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um svifvængjaflug almennt.
Kennt er skv. alþjóðlegum kennslustaðli, Parapro og er miðað við að útskrifa nemendur á Parapro 2 stigi. Kennd eru undirstöðuatriði svifvængjaflugs, beiting vængsins og fræðileg atriði á borð við veðurfræði, flugreglur ofl. Reyndustu flugmenn Fisfélags Reykjavíkur munu annast kennsluna en umsjónarmaður námskeiðsins er Róbert Bragason, robert.bragason@gmail.com, sími 898 7771 ásamt Timothy Bishop. Hægt er að senda póst og biðja um að fá senda áminningu þegar skráning á næstu námskeið er að hefjast.
Fyrirkomulag námskeiðsins verður sem hér segir:
Kennslan fer fram á kvöldin og um helgar. Þegar vel viðrar eru verklegar æfingar utan dyra en annars er tíminn notaður til að fara í bóklegt efni. Nemendur fá kennslubók sem stuðst verður við. Gert er ráð fyrir því að verklegt nám taki 6-8 daga og bóklegt fjóra daga með prófi, miðað við kennslu á kvöldin.
Námskeiðið hefst í Mai (nánari dagsetning kynnt síðar) að Grund undir Úlfarsfelli. Veður og vindar ráða miklu um tímasetningar. Nemendur verða boðaðir í kennslu eftir veðurútliti. Það er því ekki hægt að segja til um hvenær námskeiðinu lýkur.
Námskeiðsgjaldið er kr. 100.000 og það þarf að greiða að fullu áður en kennsla hefst. Innifalið í námskeiðsgjaldinu allur búnaður á meðan námskeið stendur yfir, félagsgjald í Fisfélagi Reykjavíkur sem aftur innifelur alþjóðlega slysatryggingu og kennslubókin ásamt DVD mynddisk er einnig innifalin.
Athugið að öryggi í svifvængjaflugi byggist á því að menn kunni réttu handtökin og ekki síður að meta aðstæður til flugs. Þátttaka í námskeiði á borð við þau sem Fisfélag Reykjavíkur býður á hverju ári er nauðsynleg forsenda þess að menn geti stundað þetta skemmtilega sport á öruggan og skynsamlegan hátt.





